Í gær var farið með Glám á gamlar heimaslóðir í Skagafirði, en hann verður í hólfi á Ytri-Hofdölum hjá Halldóri Jónassyni. Í leiðinni norður var komið við á Stóru-Ásgeirsá þar sem tveggja vetra folarnir Gregoríus og Hugsuður voru teknir með á kerruna. Þeir fá að þreyja frumraun sína í merum í sumar. Hugsuður verður í hryssum hjá Kjartani Birgissyni á Bakka í Viðvíkursveit en Gregoríus var lánaður til Valgeirs og Guðrúnar á Vatni á Höfðaströnd.
I går blev tre af hingstene transporteret i Skagafjörður hvor de skal gå med hopper her til sommer. Glámur vil servere hopper på gården Ytri-Hofdalir og unghingstene Hugsuður og Gregoríus vil være på henholdsvis Bakki og Vatn.
Yesterday three of our stallions were taken to Skagafjörður where they will be serving mares this summer. Glámur will be at the farm Ytri-Hofdalir, Hugsuður at Bakki and Gregoríus will be at Vatn.