Gleðilega hátíð! Fyrirsæta lýðveldisdagsins 2016 er Ritning frá Melaleiti, undan Messu frá Melaleiti og Ísaki frá Dýrfinnustöðum. Njótið dagsins!
Vi fejrer Islands nationaldag, 17. juni, med et foto af Ritning fra Melaleiti; det nye føl efter Messa fra Melaleiti og Ísak fra Dýrfinnustaðir.
We celebrate the Icelandic National Day, June 17th, with a photo of our new foal: Ritning from Melaleiti. Ritning’s dam is Messa from Melaleiti, sire Ísak from Dýrfinnustaðir.
Sjöunda júní kastaði Messa brúnu, tvístjörnóttu merfolaldi, sem hefur fengið nafnið Ritning frá Melaleiti. Ritning er undan Ísaki frá Dýrfinnustöðum, sem deginum áður bætti kynbótadóm sinn í 8.36. Ísak er undan Hróðri frá Refsstöðum og List frá Vatnsleysu.
En af vores dejligste hopper, Messa fra Melaleiti, kom den 7. juni med et fint føl, en sort hoppe med stjerne og snip. Den har fået navnet Ritning fra Melaleiti. Ritning er efter den højkårede Ísak fra Dýrfinnustaðir (8.36), der er efter Hróður fra Refsstaðir og List fra Vatnsleysa. Ritning betyder „den hellige skrift“.
Early in the morning of June 7th one of our favourite mares, Messa from Melaleiti, foaled this lovely filly, black with star and snip – we named Ritning from Melaleiti. Ritning’s sire is Ísak from Dýrfinnustaðir (breeding valuation 8.36), whose sire is Hróður from Refsstaðir and dam List from Vatnsleysa. Ritning is a biblical name, meaning the „Holy Writ“.
Click on the images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.
Fyrsta dag sumars fylgdust hrossin vel með þegar við gengum flóann og skoðuðum hvernig girðingar komu undan vetri. – Gleðilegt sumar!
Sommerens første dag fulgte hestene godt med, da vi gik og undersøgte i hvilken tilstand gårdens hegn er efter de mange dage med sne og blæst der har været i vinter.
– Vi ønsker jer alle glad sommer!
On the First Day of Summer the horses watched us carefully when we walked the pasture and examined the state of the fences after long and hard winter. – Happy summer!
Þó svo að áherslan í vetur hafi aðalega verið á tamningu og þjálfun á graðhestunum Hugsuði, Gregoríusi og Bagli, þá hefur líka aðeins verið átt við geldingana sem við eigum á fimmta vetur. Annar þeirra er Dómur frá Melaleiti, lofthár og bolléttur foli undan Andra frá Vatnsleysu og Ofgnótt. Dómur er skemmtilegur karakter, forvitinn og óhræddur við alla hluti. Hann er og býsna sporléttur og oft gaman að sjá hann hreyfa sig þegar hann er viðraður.
Selvom at vi i vinter har lagt vægt på træning af vores 3 hingste: Hugsuður, Gregoríus og Bagall, er noget arbejde også blevet lagt i træning af de to vallakker vi har fra 2011 . Den ene af dem er Dómur fra Melaleiti, efter Andri fra Vatnsleysa og Ofgnótt fra Melaleiti. Dómur er stor og lettbygget med fine bevægelser og det er ofte sjovt at se ham bevæge sig når han sættes ud i folden.
Although the emphasis this winter has been on training the three stallions: Hugsuður, Gregoríus and Bagall, some work has also been put in to the training of the two geldings we have from the year 2011. One of them is Dómur from Melaleiti, son of Andri from Vatnsleysa and Ofgnótt from Melaleiti. Dómur is a tall, playful, light build fellow and it is a joy to observe him moving around when he is put out of the stable.
Þeir stóðu sig vel afkomendur Gnóttar og Veru á sterku World Toelt móti í Óðinsvéum um síðastliðna helgi. Ágústínus sonur Gnóttar hlaut silfrið í flokki alhliða stóðhesta en bronsið í sama flokki hreppti dóttursonur Veru, hinn hágengi Léttir frá Hellesylt. Gnótt átti einnig afkomenda í úrslitum í fjórgangi, Ask frá Lönguhlíð en hann er undan Erils-dótturinni Öskju frá Stóra-Sandfelli.
De præsenterede sig godt i weekenden på World Toelt i Odense, ætlinger efter vores stamhopper Gnótt og Vera. I hingsteshowet for 5-gængere fik Gnótt-sønen Ágústínus sølvmedaljen men bronzen gik til Léttir fra Hellesylt der er efter Vera-datteren Skálmöld fra Dýrfinnustaðir. Lidt af Gnótt gener fandes også på 4-gænger fløjen hvor Askur fra Langahlíð, der er efter Erill-datteren Askja fra Stóra-Sandfell, deltog i A-finalen i V1.
The descendant of our mares Gnótt and Vera did well last weekend at the World Toelt event, held in Odense, Denmark. In the show of five-gaited stallions the son of Gnótt, Ágústínus received the silver medal and the bronze went to Léttir from Hellesylt that is son of the Vera-daughter, Skálmöld from Dýrfinnustaðir. A bit of Gnótt’s genes could also be found on the four-gaited wing where Askur from Langahlíð that is after the Erill-daughter Askja from Stóra-Sandfell, participated in the A-final in V1- competition.
Efst/ovenfor/above: Haust/efterår/autumn 2009. Vera frá Kópavogi, Síðasta-Öld frá Melaleiti, Gnótt frá Steinmóðarbæ. Neðst/nedenfor/below: Vor/forår/spring 2009. Vera 26 vetra/år/yrs; Gnótt 30 vetra/år/yrs.
Bagall er fjögurra vetra graðhestur undan Messu og Hrímni frá Ósi. Hann hefur verið á járnum í Spretti í haust og var tekinn með í Melaleiti yfir hátíðirnar. Þó svo tíðin sé rysjótt þessa dagana, þá var dagurinn í gær góður til útreiða.
Bagall fra Melaleiti er en 4 årig hingst efter Messa fra Melaleiti og Hrímir fra Ós. Bagall har farven rødskimmel med blis og hvide sokker på bagben. Han har været på stald hos os i Kópavogur i efteråret og blev taget med til Melaleiti over julen og nytår. Selv om vejret har været skiftende i disse dage så var dagen i går fin for en ridetur i det hvide landskab.
Bagall from Melaleiti is a 4 years old stallion, grey, born chestnut with a blaze and white socks on hind legs. Dam is Messa from Melaleiti and sire is Hrímir from Ós. Bagall has been in our stable in Kópavogur this autumn, but we took him to the farm over the holidays. Although the weather has been changing and turbulent last days, yesterday was a fine day for riding.
Click on the images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.
Ágústínus mánaðargamall í Melaleiti 20. september 2002.
Nýtt kynbótamat var reiknað á dögunum eftir að kynbótasýningum ársins lauk. Einn af hestunum sem nú náði mörkum til 1. verðlauna fyrir afkvæmi er Ágústínus frá Melaleiti. Nítján afkvæmi Ágústínusar hafa skilað sér til dóms, þar af hafa 14 hlotið 1. verðlaun. Nokkur frábær afkvæmi Ágústínusar komu fram á árinu, og má þar nefna fremstan í flokki Starra frá Herríðarhóli, sem var annar hæst dæmdi 5. vetra stóðhestur ársins. Hann hlaut 8.60 í aðaleinkunn, þar af 8.88 fyrir hæfileika, sem jafnframt er hæsti hæfileikdómur ársins í þeim aldurshópi. Síðan má nefna Árblakk frá Laugasteini sem hlaut 8.26 í aðaleinkunn (bygging 8.06, hæfileikar 8.41) og var þar með þriðji hæst dæmdi 4. vetra hesturinn í ár. Nokkuð einkennandi fyrir afkvæmi Ágústínusar eru góðir kostir, mikið rými og skreflengd, en einnig kemur þægilega á óvart hve vel mörg þeirra dæmast fyrir byggingu. Ágústínus er nú staðsettur í Danmörku, en allmörg afkvæmi, sem ekki eru komin á tamningaraldur, eru til hérlendis. Nokkur afkvæmi Ágústínusar eru til í eigu fjölskyldunnar og var eitt þeirra sýnt í sumar í góðan dóm:Júlíus Sesar frá Kópavogi(b. 8.46, h. 8.06, a. 8.22) – fleiri mæta svo vonandi á kynbótavöllinn með vorinu.
Ny BLUP udregning for 2015 udkom for nylig. En af de heste der nu har kvalificeret sig til 1. pris for afkom er Ágústínus fra Melaleiti med 122 i BLUP. Nitten afkom efter Ágústínus er blevet kåret og 14 af dem er kåret til 1. premie. Nogle af Ágústínus afkom har opnået fantastiske resultater i år, f.eks. Starri fra Herríðarhóll, der fik 8.88 (8.60 totalt) for rideegenskaber som er den højeste skoring for femårig i år. En anden søn af Ágústínus er Árblakkur fra Laugasteinn der blev den 3. højest kårede 4 års hingst i år, med 8.26 total (bygning 8.06 – rideegenskaber 8.41). Det der kendetegner Ágústínus afkom er gode rideegenskaber og stor rummelighed i gangarterne. Ágústínus er nu i Danmark, men familien ejer en del afkom efter ham. Et af dem: Júlíus Sesar fra Kópavogur, der ejes af Stutteri Ahl i Danmark, blev kåret her i sommer til 8.22 total. Flere vil forhåbentligt komme i kølvandet til foråret.
New BLUP evaluation for 2015 was published few days ago. One of the stallions that now have reach the limits for 1. price for offspring is Ágústínus from Melaleiti with a BLUP score of 122. Nineteen offspring of Ágústínus have now been evaluated and 14 of these have been evaluated to a 1. price. Some of Agustinus offspring have achieved great results this year, for example Starri from Herríðarhóll, that scored 8.88 points (8.60 in total) for rideability; – the highest riding score this year for a 5 year old horse. Another son of Ágústínus, Árblakkur from Laugasteinn was the third highest evaluated 4 year old Icelandic stallion in the world, with 26.8 in total (conformation 8.06 – rideability 8.41). The main characteristics of Ágústínus’ offspring are good rideabilities with great speed in the gaits. Ágústínus is nowin Denmark but the family still owns a number of his offspring. One of them is Júlíus Sesar from Kópavogur, owned by Stutteri Ahl in Denmark. He was evaluated this sommer to 8.22 in total. Hopefully some other offsprings owned by the family will enter the breeding track next year.
Ágústínus frá Melaleiti á LM 2008. Knapi Agnar Þór Magnússon.
Nú var það skrautlegt! Það var merin Glás sem kom með síðasta folaldið í hópnum í Melaleiti þetta árið, en hún fór undir Hvin frá Blönduósi, sem er undan Álfi frá Selfossi og Hrímu frá Hofi. Glás kastaði þessu merfolaldi í gær: brúnhöttóttu-blesóttu, hringeygðu á hægra auga. Brúni liturinn mun þó væntanlega fljótlega víkja fyrir gráa litnum eins og folaldið á kyn til í föðurættina. Folaldið fékk nafnið Gáfa frá Melaleiti.
Sort og hvidt! I går kom så det sidste føl i år hos os i Melaleiti. Moren er Glás fra Hofsós men faren er Hvinur fra Blönduós, der er efter Álfur fra Selfoss og Hríma fra Hof. Der var mulighed for en spændende farve og det blev den sandelig! Et sortbroget hoppe-føl med et glasøje og blis. Føllet har fået navnet Gáfa fra Melaleiti. Navnet betyder talent, begavelse, genialitet, eller en gave. Gáfa vil sandsynligvis blive sort-skimmelbroget som faren.
Black and white! And so came the last foal this year in Melaleiti, when Glás from Hofsós came with a black pinto, glass-eyed filly yesterday morning. The sire is Hvinur from Blönduós, whose sire is Álfur from Selfoss and dam Hríma from Hof. The filly got the name Gáfa from Melaleiti, meaning talent, brilliance, or a gift. Gáfa will presumably take color after the sire Hvinur and the granddam Hríma and pretty soon turn all grey.
Click on the images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.
Ísak frá Dýrfinnustöðum. Eig. og knapi: Björg Ingólfsdóttir.
Í síðustu viku var farið með þær Messu og Runu í Skagafjörð undir Ísak frá Dýrfinnustöðum, en hann er 5. vetra stóðhestur sem vinkona okkar Björg Ingólfsdóttir hefur ræktað. Ísak, sem undan Hróðri frá Refsstöðum og List frá Vatnsleysu, hefur vakið athygli okkar í uppvextinum fyrir myndarskap og kurteisi í allri umgengni. Ísak er með stærstu hestum (151 sm) og var í vor sýndur í kynbótadómi til 1. verðlauna af Gísla Gíslasyni í Þúfum þar sem hann fékk meðal annas 8.66 fyrir byggingu. Ingunn systir Bjargar sendi okkur þessa fínu mynd af Björgu á hestinum til að birta með þessari færslu.
I sidste uge tog vi Messa og Runa på hestetraileren til Skagafjörður for at møde Ísak fra Dýrfinnustaðir,en fem årig hingst der er avlet af vores veninde Björg Ingólfsdóttir. Ísak, der er efter Hróður fra Refsstaðir og List fra Vatnsleysa, har gjort godt indtryk under opvæksten for sit smukke ydre samt sit rolige og medgørelige sind. Ísak blev kåret til 1. premie her til foråret og opnåede bl.a. 8.66 for byggning. Ingunn, der er søster til ejeren Björg, tog dette fine billede af Björg og Ísak for vores blog.
Last week we took two of our mares, Messa and Runa, to Skagafjörður to meet Ísak from Dýrfinnustaðir, a five year old stallion owned by our young friend Björg Ingólfsdóttir. Ísak, whose sire is Hróður from Refsstaðir and dam List from Vatnsleysa, has through the years made an impression on us for his beauty and calm and friendly temperament. He was evaluated for breeding this spring and got a 1. price. Björg’s sister, Ingunn, took this nice picture for our blog, of Björg riding Ísak.