Áramótakveðja

Aramot-Viljahestar-2015-2016

Bestu óskir um gleðilegt ár! Við þökkum góðar móttökur og heimsóknir á heimasíðuna okkar á árinu.

 Godt nytår til alle venner af Viljahestar! Vi takker for de mange besøg til vores hjemmeside med nogle fotos af flokken fra nu her i ugen.

 Happy New Year – with a few photos from last week and very best wishes from Viljahestar.

Viljahestar28des15-2

Bagall á jólum 2015

Bagall29des2015-2

Bagall er fjögurra vetra graðhestur undan Messu og Hrímni frá Ósi. Hann hefur verið á járnum í Spretti í haust og var tekinn með í Melaleiti yfir hátíðirnar. Þó svo tíðin sé rysjótt þessa dagana, þá var dagurinn í gær góður til útreiða.

Bagall fra Melaleiti er en 4 årig hingst efter Messa fra Melaleiti og Hrímir fra Ós. Bagall har farven rødskimmel med blis og hvide sokker på bagben. Han har været på stald hos os i Kópavogur i efteråret og blev taget med til Melaleiti over julen og nytår. Selv om vejret har været skiftende i disse dage så var dagen i går fin for en ridetur i det hvide landskab.

Bagall from Melaleiti is a 4 years old stallion, grey, born chestnut with a blaze and white socks on hind legs. Dam is Messa from Melaleiti and sire is Hrímir from Ós. Bagall has been in our stable in Kópavogur this autumn, but we took him to the farm over the holidays. Although the weather has been changing and turbulent last days, yesterday was a fine day for riding.

Click on the images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.

Bagall29des2015-1

 

Spraki

Spraki frá Melaleiti desember 2015, knapi Hörður Óli Sæmundsson
Spraki frá Melaleiti desember 2015, knapi Hörður Óli Sæmundsson

Spraki er moldóttur graðhestur á fjórða vetur undan Árelíusi frá Hemlu og Spekt frá Lýtingsstöðum og hefur að undanförnu verið í tamningu hjá Herði Óla og Jessie í Gröf í Víðidal. Spraki hefur reynst auðtaminn og sinnugur. Sem folald vakti hann athygli okkar fyrir hve takthreinn hann var á tölti og nú eftir u.þ.b. eins og hálfs mánaðar tamningu er það einnig kjörgangur hans í reið en leitar þó á köflum í ljómandi brokk, sem sjálfsagt á eftir að styrkjast með meiri tamningu.

  Spraki er en 3 årig, muldfarvet hingsteemne i vores eje, efter Ágústínus-sønnen Árelíus fra Hemla og Spekt fra Lýtingsstaðir. Han har været i træning hos Hörður Óli Sæmundsson og Jessie Huijbers der driver en træningscenter i Gröf i Víðidalur i nordvest Ísland. Spraki har vist sig at være medgørelig og lærenem og nu efter seks uges træning går han mest klokkerent tölt, noget der også kendetegnede ham som føl og var medvirkende til at han blev udvalgt som hingsteemne.

Spraki is a 3 year old stallion after one of Ágústínus’ sons: Árelíus from Hemla og Spekt from Lýtingsstaðir. Spraki has been in training at Hörður Óli Sæmundssons and Jessie Huijbers stables in Gröf in Víðidalur in Northwest of Iceland. Spraki has been quick learner and easy to train, and now after only six weeks of training, he favors a clear-beat tölt as also characterize him as a foal.  This along with a great color made him a good choice as a stallion prospect. 

Áfanga náð – Ágústínus frá Melaleiti

Ágústínus 20020920
Ágústínus mánaðargamall í Melaleiti 20. september 2002.

Nýtt kynbótamat var reiknað á dögunum eftir að kynbótasýningum ársins lauk. Einn af hestunum sem nú náði mörkum til 1. verðlauna fyrir afkvæmi er Ágústínus frá Melaleiti. Nítján afkvæmi Ágústínusar hafa skilað sér til dóms, þar af hafa 14 hlotið 1. verðlaun. Nokkur frábær afkvæmi Ágústínusar komu fram á árinu, og má þar nefna fremstan í flokki Starra frá Herríðarhóli, sem var annar hæst dæmdi 5. vetra stóðhestur ársins. Hann hlaut 8.60 í aðaleinkunn, þar af 8.88 fyrir hæfileika, sem jafnframt er hæsti hæfileikdómur ársins í þeim aldurshópi. Síðan má nefna Árblakk frá Laugasteini sem hlaut 8.26 í aðaleinkunn (bygging 8.06, hæfileikar 8.41) og var þar með þriðji hæst dæmdi 4. vetra hesturinn í ár. Nokkuð einkennandi fyrir afkvæmi Ágústínusar eru góðir kostir, mikið rými og skreflengd, en einnig kemur þægilega á óvart hve vel mörg þeirra dæmast fyrir byggingu. Ágústínus er nú staðsettur í Danmörku, en allmörg afkvæmi, sem ekki eru komin á tamningaraldur, eru til hérlendis. Nokkur afkvæmi Ágústínusar eru til í eigu fjölskyldunnar og var eitt þeirra sýnt í sumar í góðan dóm: Júlíus Sesar frá Kópavogi (b. 8.46, h. 8.06, a. 8.22) – fleiri mæta svo vonandi á kynbótavöllinn með vorinu. 

   Ny BLUP udregning for 2015 udkom for nylig. En af de heste der nu har kvalificeret sig til 1. pris for afkom er Ágústínus fra Melaleiti med 122 i BLUP. Nitten afkom efter Ágústínus er blevet kåret og 14 af dem er kåret til 1. premie. Nogle af Ágústínus afkom har opnået fantastiske resultater i år, f.eks. Starri fra Herríðarhóll, der fik 8.88 (8.60 totalt) for rideegenskaber som er den højeste skoring for femårig i år. En anden søn af Ágústínus er Árblakkur fra Laugasteinn der blev den 3. højest kårede 4 års hingst i år, med 8.26 total (bygning 8.06 – rideegenskaber 8.41). Det der kendetegner Ágústínus afkom er gode rideegenskaber og stor rummelighed i gangarterne. Ágústínus er nu i Danmark, men familien ejer en del afkom efter ham. Et af dem: Júlíus Sesar fra Kópavogur, der ejes af Stutteri Ahl i Danmark, blev kåret her i sommer til 8.22 total. Flere vil forhåbentligt komme i kølvandet til foråret.

 New BLUP evaluation for 2015 was published few days ago. One of the stallions that now have reach the limits for 1. price for offspring is Ágústínus from Melaleiti with a BLUP score of 122. Nineteen offspring of Ágústínus have now been evaluated and 14 of these have been evaluated to a 1. price. Some of Agustinus offspring have achieved great results this year, for example Starri from Herríðarhóll, that scored 8.88 points (8.60 in total) for rideability; – the highest riding score this year for a 5 year old horse. Another son of Ágústínus, Árblakkur from Laugasteinn was the third highest evaluated 4 year old Icelandic stallion in the world, with 26.8 in total (conformation 8.06 – rideability 8.41). The main characteristics of Ágústínus’ offspring are good rideabilities with great speed in the gaits. Ágústínus is now in Denmark but the family still owns a number of his offspring. One of them is Júlíus Sesar from Kópavogur, owned by Stutteri Ahl in Denmark. He was evaluated this sommer to 8.22 in total. Hopefully some other offsprings owned by the family will enter the breeding track next year.

Ágústínus-Landsmót-2008-2
Ágústínus frá Melaleiti á LM 2008. Knapi Agnar Þór Magnússon.

Gáfa frá Melaleiti

Glás-og-Gáfa-28juni2015-1

Nú var það skrautlegt! Það var merin Glás sem kom með síðasta folaldið í hópnum í Melaleiti þetta árið, en hún fór undir Hvin frá Blönduósi, sem er undan Álfi frá Selfossi og Hrímu frá Hofi. Glás kastaði þessu merfolaldi í gær: brúnhöttóttu-blesóttu, hringeygðu á hægra auga. Brúni liturinn mun þó væntanlega fljótlega víkja fyrir gráa litnum eins og folaldið á kyn til í föðurættina. Folaldið fékk nafnið Gáfa frá Melaleiti.

 Sort og hvidt! I går kom så det sidste føl i år hos os i Melaleiti. Moren er Glás fra Hofsós men faren er Hvinur fra Blönduós, der er efter Álfur fra Selfoss og Hríma fra Hof. Der var mulighed for en spændende farve og det blev den sandelig! Et sortbroget hoppe-føl med et glasøje og blis. Føllet har fået navnet Gáfa fra Melaleiti. Navnet betyder talent, begavelse, genialitet, eller en gave. Gáfa vil sandsynligvis blive sort-skimmelbroget som faren.

 Black and white! And so came the last foal this year in Melaleiti, when Glás from Hofsós came with a black pinto, glass-eyed filly yesterday morning. The sire is Hvinur from Blönduós, whose sire is Álfur from Selfoss and dam Hríma from Hof. The filly got the name Gáfa from Melaleiti, meaning talent, brilliance, or a gift. Gáfa will presumably take color after the sire Hvinur and the granddam Hríma and pretty soon turn all grey.

Gáfa-frá-Melaleiti-28juni2015-2 Gáfa-frá-Melaleiti-28juni2015-3

Click on the images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.

Veðjað á Ísak!

Isak-fra-Dyrfinnustodum
Ísak frá Dýrfinnustöðum. Eig. og knapi: Björg Ingólfsdóttir.

Í síðustu viku var farið með þær Messu og Runu í Skagafjörð undir Ísak frá Dýrfinnustöðum, en hann er 5. vetra stóðhestur sem vinkona okkar Björg Ingólfsdóttir hefur ræktað. Ísak, sem undan Hróðri frá Refsstöðum og List frá Vatnsleysu, hefur vakið athygli okkar í uppvextinum fyrir myndarskap og kurteisi í allri umgengni. Ísak er með stærstu hestum (151 sm) og var í vor sýndur í kynbótadómi til 1. verðlauna af Gísla Gíslasyni í Þúfum þar sem hann fékk meðal annas 8.66 fyrir byggingu. Ingunn systir Bjargar sendi okkur þessa fínu mynd af Björgu á hestinum til að birta með þessari færslu.

 I sidste uge tog vi Messa og Runa på hestetraileren til Skagafjörður for at møde Ísak fra Dýrfinnustaðir, en fem årig hingst der er avlet af vores veninde Björg Ingólfsdóttir.  Ísak, der er efter Hróður fra Refsstaðir og List fra Vatnsleysa, har gjort godt indtryk under opvæksten for sit smukke ydre samt sit rolige og medgørelige sind. Ísak blev kåret til 1. premie her til foråret og opnåede bl.a. 8.66 for byggning. Ingunn, der er søster til ejeren Björg, tog dette fine billede af Björg og Ísak for vores blog. 

 Last week we took two of our mares, Messa and Runa, to Skagafjörður to meet Ísak from Dýrfinnustaðir, a five year old stallion owned by our young friend Björg Ingólfsdóttir. Ísak, whose sire is Hróður from Refsstaðir and dam List from Vatnsleysa, has through the years made an impression on us for his beauty and calm and friendly temperament. He was evaluated for breeding this spring and got a 1. price. Björg’s sister, Ingunn, took this nice picture for our blog, of Björg riding Ísak.

Á Jónsmessu

Folöld-og-merar-23juni2015

Meistari-og-Miklihvellur-23juni2015

Í blíðviðri á Jónsmessu fengum við heimsókn í Melaleiti. Folöldin tóku að sjálfsögðu spretti til að sýna sig fyrir gestunum. Hér fyrir neðan eru það Miklihvellur, rauðblesóttur, sokkóttur, undan Veröld, og Meistariundan Erlu-Birtingi, – bæði folöldin undan Gregoríusi frá Melaleiti.

 Vejret var mildt og stille i Melaleiti på Sankt Hans-aften. Vi fik gæster og føllene ville da gerne vise sig for gæsterne. Her er det Miklihvellur (rød med blis og hvide sokker, efter Veröld) og Meistari (sort, efter Erla-Birtingur), men begge to er efter Gregoríus fra Melaleiti.

 Midsummer’s Eve was mild and peaceful at Melaleiti, but when guests arrived the foals were eager to show off with their sprints. Below are Miklihvellur (red with blaze/white socks, name meaning: Big-Bang) and Meistari (black, name meaning: Champion, dam: Erla-Birtingur). Sire to both is Gregoríus from Melaleiti.

This slideshow requires JavaScript.

This slideshow requires JavaScript.

Veröld-Miklihvellur-Meistari-23juni2015
Veröld, Miklihvellur og Meistari

Myndirnar teknar 23. júní um kl 21:30. | Photos taken on June 23. at around 9:3o pm.

Folöldin dafna vel

Feikn-Júní2015-1
Feikn frá Melaleiti

Folöldin í Melaleiti dafna vel. Það er gaman að fylgjast þroskanum og spá í útlit og skapgerð. Hér má sjá nokkrar myndir sem teknar voru í síðustu viku.

 Føllene i Melaleiti trives godt. Det er sjovt at følge med i deres udvikling og spekulere i karaktertræk og udseende. Her kommer nogle fotos fra i sidste uge.

 The new foals in Melaleiti are doing well. It’s a joy to see them develop and to ponder about the different types, looks and personalities. Here are photos that were taken last week.

Click on the images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.

Feikn frá Melaleiti – feiknafín.


Nót frá Melaleiti
Nót frá Melaleiti

Nót frá Melaleiti


Meistari frá Melaleiti
Meistari frá Melaleiti

Meistari frá Melaleiti


Miklihvellur frá Melaleiti
Miklihvellur frá Melaleiti

Mikilhvellur frá Melaleiti


Vottur frá Melaleiti
Vottur frá Melaleiti

Vottur frá Melaleiti

Vottur frá Melaleiti

Vottur-frá-Melaleiti-1-2015

Folöldunum fjölgar enn í Melaleiti þó hvellurinn hafi verið ögn minni í þetta sinn. Í morgun kastaði Vissa frá Efri-Þverá rauðblesóttu hestfolaldi. Vissu fengum við að láni, en hún er hágeng og rúm alhliða hryssa úr ræktun Halldórs Svanssonar. Vissa er undan Fursta frá Efri-Þverá og Hvöt frá Kópavogi og er því komin af stofnhryssum Viljahesta: Nótt frá Uxahrygg (Fmmm) og Gnótt frá Steinmóðarbæ (Mmm). Folaldið hefur fengið nafnið Vottur frá Melaleiti og er undan Gregoríusi frá Melaleiti.

 Endnu et hingsteføl blev født i Melaleiti her til morgen, i det våde og kolde vejr vi har for tiden. Noget mindre en broren fra i går, men også rød med blis, efter Gregoríus fra Melaleiti. Moren er Vissa fra Efri-Þverá, som vi har lånt fra Halldór Svansson. Faren til Vissa er Fursti fra Efri-Þverá og Hvöt fra Kópavogur, der begge to stammer fra Viljahestars stam-hopper: Nótt fra Uxahrygg (Fmmm) og Gnótt fra Steinmóðarbæ (Mmm). Den lille hingst fik navnet Vottur fra Melaleiti, som kan betyde bl.a. vidne, bevis eller en „en smule“.

 Yet another foal was born this morning in Melaleiti. A small chestnut colt with a blaze sired by Gregoríus from Melaleiti. The dam is Vissa from Efri-Þverá, a mare we borrowed for breeding from Halldór Svansson. Sire to Vissa is Fursti from Efri-Þverá, dam Hvöt from Kópavogur, both originating from our first breeding mares: Nótt from Uxahryggur and Gnótt from Steinmóðarbær. The foal got the name Vottur from Melaleiti, that can mean:“a witness”, “a sign” or even “a bit”. Despite the wet and cold weather this newborn little colt stood tall.

Vottur-frá-Melaleiti-2-2015

Click on the images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.

Miklihvellur frá Melaleiti

Miklihvellur-frá-Melaleiti-1-2015

Eftir óveðursnótt leit Miklihvellur frá Melaleiti dagsins ljós þegar Veröld kastaði rauðblesóttu og sokkóttu folaldi skömmu fyrir hádegi í dag. Folaldið með þessu hógværa nafni er undan Gregoríusi frá Melaleiti, en systur hans eru m.a. Bóseind og Nifteind.

 Efter en våd og stormfuld nat kom Veröld (Verden) i formiddag med et rødt hingsteføl med blis og hvide sokker. Føllet har fået det beskedne navn Miklihvellur fra Melaleiti, altså „Store-Brag“, og er efter Gregoríusi fra Melaleiti. Miklihvellurs søstre er bl.a. Bóseind (Boson) og helsøsteren Nifteind (Neutron) fra sidste år.

 After a stormy, cold and rainy night did Veröld (World or Universe) foal this morning, a chestnut colored colt, with a blaze and white socks. The foal has been given the name Miklihvellur, meaning: “Big-Bang”. The name Miklihvellur comes in line with Veröld’s other offspring, i.e. Bóseind (Boson) and Nifteind (Neutron).

Miklihvellur-frá-Melaleiti-7-2015

Click on images to enlarge | Smellið á myndirnar til að stækka.